Persónuvernd
HBB Imports ehf leggur mikla áherslu á að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga sem unnið er með innan fyrirtækisins. Persónuverndarstefna okkar nær til persónuupplýsinga er varða einstaklinga sem eru í viðskiptum við fyrirtækið, viðskiptavini sem hafa samband við fyrirtækið, tengiliði birgja fyrirtækisins sem og aðra tengiliði (hér eftir sameiginlega vísað til „þín“).
Persónuverndarstefnu okkar er ætlað að upplýsa þig um hvaða persónuupplýsingum fyrirtækið safnar, með hvaða hætti fyrirtækið nýtir slíkar persónuupplýsingar og hverjir fá aðgang að upplýsingunum.
Persónuverndarstefna fyrirtækisins er byggð á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Persónuupplýsingar í skilningi stefnunnar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings. Gögn sem eru ópersónugreinanleg teljast ekki persónuupplýsingar.
Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um þig.
Eftirfarandi eru dæmi um upplýsingar sem HBB Imports ehf vinnur um einstaklinga í viðskiptum við fyrirtækið:
· samskiptaupplýsingar, svo sem nafn, símanúmer og netfang;
· kennitala;
· upplýsingar úr samskiptum;
· reikningsupplýsingar;
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.
