AFHENDING
Þegar þú verslar í vefverslun HBB Imports ehf getur þú valið á milli þess að sækja pöntunina í samráði við verslunina eða fá hana senda með flutningsaðila/ábyrgðarpósti hjá. Afhending skotvopna fer aðeins fram ef leyfi frá Lögreglu hefur verið gefið út.
Afhendingartími aukahluta er næsti virki dagur frá pöntunardagssetningu en afhending skotvopna fer eftir útgefnu leyfi.
Sendingarkostnaður er ekki innifalinn í verði vörunnar en sending verður merkt: “Viðtakandi greiðir sendinguna”.
SKILAFRESTUR
Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga að því tilskildu að vörunni sé skilað í upprunalegum umbúðum og í því ástandi sem hún kom til þín. Greiðslukvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með ef um vöruskil er að ræða. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt.
Endurgreiðsla er gerð á sama kreditkort og kaupin áttu sér stað upphaflega.
Skilaréttur gildir ekki um útsöluvörur þar sem þeim fæst hvorki skipt né skilað.
VERÐ
Vinsamlegast athugið að verð sem eru uppgefin í vefverslun geta breyst án fyrirvara.
SKATTAR & GJÖLD
Öll verð í vefversluninni eru birt með virðisaukaskatti og allir reikningar sem gefnir eru út eru með virðisaukaskatti.
GREIÐSLUMÖGULEIKAR
HBB Imports ehf býður upp á að greiða með greiðslukorti, með millifærslu eða reiðufé. Ef óskað er að greiða með millifærslu eru bankaupplýsingar á sölureikningi.
Kortaupplýsingar eru geymdar á öruggum stað á meðan á greiðsluferlinu stendur. Fyrir frekari upplýsingar um viðskiptaskilmála Rapyd, bendum við á heimasíðu Rapyd: http://www.rapyd.is
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.
UPPLÝSINGAR UM SELJANDA
HBB Imports ehf
kt: 690818 0190
Gjáhella 17
221 Hafnarfjörður
s: 888 9980
info@hbb.is
VSK-númer: 132570
ÁBYRGÐARSKILMÁLAR
Ef vara telst gölluð munum við gera við hana, skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini okkar. Ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu hnjaski sem verður við notkun og/eða sökum aldurs vörunnar. Ábyrgðin nær ekki heldur til tjóns sem hlýst af því að þurrskjóta randkveiktum (rimfire) byssum.
HBB Imports ehf ber ekki ábyrgð á ástandi þeirra notaðra skotvopna sem verslunin hefur til sölu.
